Sýningakerfi

Heildarlausn fyrir sýningarbása: hönnun, prentun, húsgögn og uppsetning.

Sýningakerfi

Við hönnum sýningarbása í þrívídd, setjum upp sýningakerfi, prentum á veggi og límstafi og sjáum um rafmagnið. Þú mætir og selur.

Við leigjum líka út húsgögn og búnað: bæklingastanda, borð, stóla, fatahengi, kæla og lampa. Popup- og auglýsingastandar fást í nokkrum stærðum og eru léttir í flutningi.

Við höfum meðal annars komið að Verk og vit, Icefish, Sjávarútvegssýningunni, Amazing Home Show, Fit & Run og My Baby.

  • Básar hannaðir í þrívídd
  • Prentun á veggi og gólfteppi
  • Leiguhúsgögn og búnaður
  • Rafmagn og uppsetning

Myndir úr verkefnum

Segðu okkur hvað þú vilt merkja

Sendu okkur hugmynd, merki eða teikningu. Við förum yfir efni, stærðir og verð og höfum samband um hæl.