
Sýningarbásar
Verk og vit, Icefish, Sjávarútvegssýningin, Amazing Home Show, Fit & Run og My Baby. Hönnun, prentun, húsgögn og uppsetning.
Brot af því sem við höfum hannað, prentað, smíðað og sett upp.

Sýningin í Eldheimum var gerð í tilefni þess að 40 ár voru liðin frá eldgosinu í Heimaey árið 1973. Efnt var til samkeppni um sýninguna og hana vann Axel Hallkell Jóhannesson, hönnuður hjá Gagarín.
Öll sýningin er prentuð á plexigler í Vutek-prentara Merkingar, sem getur prentað hvítan lit. Slík prentun var ekki möguleg hér á landi fyrr en prentarinn kom til okkar árið 2014. Allar myndir voru skannaðar og unnar til prentunar hjá okkur.

Verk og vit, Icefish, Sjávarútvegssýningin, Amazing Home Show, Fit & Run og My Baby. Hönnun, prentun, húsgögn og uppsetning.

Heilmerking eftir hönnun Hvíta hússins. Merking gerði fyrstu bílamerkingarnar á Íslandi árið 1993.

Sýning Ragnars Th. Sigurðssonar við Jökulsárlón 2019 og sýning Mats Wibe Lund í Norræna húsinu.

Sérsmíðaður LED-skjár í hring, settur upp í anddyri hótelsins.
Sendu okkur hugmynd, merki eða teikningu. Við förum yfir efni, stærðir og verð og höfum samband um hæl.