Ljósmyndaprentun

Ljósmyndir á pappír, striga, ál, C-bond og plexi, unnar af faglærðum ljósmyndurum.

Ljósmyndaprentun

Ljósmyndadeildin stækkar myndir á Epson SureColor P20000, sem prentar allt að 152 cm breitt, og Epson 9000, sem er aðallega notaður fyrir striga. Við notum 260–290 g pappír frá Mitsubishi í mattri, háglans eða luster áferð.

Chromaluxe-myndir eru hitapressaðar á 1 mm álplötu, léttar og með djúpum háglans. C-bond er 3 mm létt og sterk plata úr áli og plastefni sem mikið er notuð undir ljósmyndir. Strigamyndir eru lakkaðar og strekktar á 2 eða 4 cm blindramma.

Við höfum sett upp fjölda ljósmyndasýninga, meðal annars sýningu Ragnars Th. Sigurðssonar við Jökulsárlón árið 2019 og sýningu Mats Wibe Lund í Norræna húsinu.

  • Afgreiðsla almennt 3–6 virkir dagar
  • Chromaluxe allt að 80×120 cm, 8–11 virkir dagar
  • Upphengi með listum eða Z-festingum
  • Rammar utan um C-bond myndir

Myndir úr verkefnum

Segðu okkur hvað þú vilt merkja

Sendu okkur hugmynd, merki eða teikningu. Við förum yfir efni, stærðir og verð og höfum samband um hæl.