Skiltagerð síðan 1979

Við hjálpum fyrirtækjum að sjást. Í gluggum, á bílum, á húsveggjum, á sýningum og meðfram vegum landsins.

Vel merkt fyrirtæki vekur athygli

Merking var stofnuð árið 1979. Í dag sinnum við gluggamerkingum, bílamerkingum, ljósaskiltum og auglýsingaskiltum innan- og utandyra, auk sýninga, ljósmyndaprentunar og sérsmíði úr plexi.

Umferðar-, umhverfis- og öryggismerkingar eru sérsvið okkar. Þær framleiðum við eftir stöðlum eða sérþörfum hvers og eins.

Þú pantar og við framleiðum og afhendum, ýmist uppsett eða ekki, allt eftir þínum óskum. Hjá okkur starfar fagfólk með áratuga reynslu sem leggur metnað í vandaða vinnu.

Skilti Merkingar, format í akrýl
Húsnæði Merkingar á Viðarhöfða 4

Tækjakosturinn

  • Fimm prentvélarSú stærsta prentar allt að 5 metra breiðan flöt í einu lagi.
  • Vutek prentariPrentar beint á plexi og aðrar plötur, líka með hvítum lit.
  • MálmsmíðaverkstæðiSmíði ljósaskilta og annarra skilta. Fræsari og sprautuklefi.
  • LjósmyndadeildEpson SureColor P20000 og Epson 9000, Chromaluxe og C-bond.

Viðskiptaskilmálar

Öll verð eru staðgreiðsluverð með 24% virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram og geta breyst án fyrirvara.

Merking áskilur sér rétt til að hætta við pantanir ef vara er ófáanleg eða ef verðupplýsingar eru rangar.

Fyrirtæki geta sótt um reikningsviðskipti hjá skrifstofu í síma 556-9000.

Segðu okkur hvað þú vilt merkja

Sendu okkur hugmynd, merki eða teikningu. Við förum yfir efni, stærðir og verð og höfum samband um hæl.