Ljósa- og díóðuskilti
Baklýstir stafir, ljósakassar og framlýst skilti, smíðuð á okkar eigin verkstæði.

Ljósaskilti og baklýstir stafir hafa lengi verið eitt stærsta verkefnasvið Merkingar. Við hönnum, smíðum og setjum upp skilti fyrir verslanir, fyrirtæki og stofnanir um allt land.
Í dag notum við nær eingöngu díóður (LED) í skiltin. Þær endast lengi og lækka rekstrarkostnað verulega miðað við eldri lýsingu.
- Baklýstir stafir með ljósgeisla á vegg
- Ljósakassar úr áli með plexi framhlið
- Day/night plexi: svart í dagsbirtu, lýsir hvítt í myrkri
- Fræstir þykkir plexistafir
- Uppsetning um allt land
Myndir úr verkefnum
Tengd þjónusta
Segðu okkur hvað þú vilt merkja
Sendu okkur hugmynd, merki eða teikningu. Við förum yfir efni, stærðir og verð og höfum samband um hæl.




